Locobase Itch Relief Coolmousse

Kælandi froða fyrir þurrk, ertingu og kláða í húð

100 ml

Locobase Itch Relief Coolmousse er kælandi froða sem er sérstaklega þróuð til að slá hratt á ertingu og kláða í húð. Froðan inniheldur mild innihaldsefni eins og Aloe Barbadensis þykkni og glýserín sem róar húðina og veitir henni raka.

Kláðastillandi froðan má fara á allan líkamann, líka andlit og hentar fyrir alla fjölskylduna, jafnvel börn frá 3 mánaða aldri. Froðuna má nota eins oft og þörf er á.

Áferðin er létt, froðan frásogast hratt inn í húðina og klístrast ekki.

Veitir strax kælandi og róandi áhrif á húðina

Frásogast hratt, klístrast ekki

Hentar allri fjölskyldunni, líka börnum

Ilmefnalaust

Vegan

Virkni prófuð af húðsjúkdómalæknum

Þú finnur Locobase vörurnar í næsta apóteki eða í netverslunum