Locobase Renew
Hyrnisleysandi krem. Fjarlægir þykka, hreistraða og harða húð.
Locobase Renew er hyrnisleysandi krem sem fjarlægir þykka, harða og hreistraða húð. Gerir húðina dásamlega mjúka. Kremið inniheldur própýlenglýkól sem bindur vatn og hjálpar húðinni að halda raka, einnig AHA-mjólkursýru sem hefur húðslípandi áhrif – ysta lag húðarinnar er fjarlægt.
Locobase Renew hjálpar til við að fjarlægja þurra, harða, hreistraða og grófa húð á útsettum svæðum eins og brjósti, baki, handleggju, fótum, hælum, iljum, lófum og/eða hársverði.
Notað gegn hreistraðri húð og mýkjandi meðferð við þykkri, þurri og harðri húð.
Notað við hreisturhúð þegar þú hefur áður fengið greiningu og meðferð hjá lækni og þarfnast frekari meðferðar.
Notkun
Ef læknir hefur ekki ráðlagt þér öðru.
Börn og fullorðnir: Berið kremið 1-2 á dag á þykka, harða og/eða hreistraða húð, best er að gera það strax á eftir baði eða sturtu.
Ef einkennin lagast ekki eða versna innan þriggja vikna skaltu hafa samband við lækni.
Þegar notað er Locobase Renew 490 gr. er gott að banka dollunni af og til á fastan flöt fyrir notkun, þau auðveldar kreminu að komast upp úr dælunni.
Innihaldsefni
Virku efnin eru própýlenglýkól (200 mg/g) og mjólkursýra (45 mg/g).
Innihaldslýsing
Própýlenglýkól
Mjólkursýra
Setóstearýlalkóhól
Makrógólsetóstearýleter
Fljótandi paraffín
Hvítt vaselín
Vatnsfrí sítrónusýra (E330)
Vatnsfrítt natríumsítrat
Metýlparahýdroxýbensóat (E218)
Steinefnaskert vatn
Locobase Renew er notað sem húðslípunar- og mýkingarmeðferð fyrir þykka, harða og þurra húð. Notað við hreisturhúð (ichthyosis) ef þú hefur fengið greiningu og meðhöndlun hjá lækni áður og þarfnast frekari meðhöndlunar. Ekki má bera Locobase Renew í eyrnagöng, í augu, á opin sár eða á alvarlega skemmda húð eins og brennda húð. Ef þú tekur eftir nýjum einkennum í húð skaltu hafa samband við lækni. Lestu leiðbeiningar áður en þú notar Locobase Renew. Locobase Renew fæst í 100 gr. og 490 gr. (án lyfseðils)
Annað
Ekki ætti að nota Locobase Renew ef þú ert með ofnæmi fyrir mjólkursýru, própýlenglýkóli eða einhverju innihaldsefnanna. Ekki má bera Locobase Renew í eyrnagöng, í augu, í opin sár eða á alvarlega skemmda húð t.d brennda húð. Ef það gerist skal skola af með miklu vatni.
Locobase Renew má nota á meðgöngu. Til að forðast óþarfa upptöku própýlenglýkóls hjá ungabörnum skal ekki bera kremið á geirvörtur fyrir brjóstagjöf.














