Locobase Repair
Viðgerðarkrem fyrir mjög þurra og sprungna húð
Locobase Repair er í sérstöku uppáhaldi hjá mörgum viðskptavinum og hefur verið notað í kynslóðir gegn mjög þurri og sprunginni húð, auk viðbótar húðumhirðu við exemi og útbrotum.
Nokkrar rannsóknir hafa sýnt fram á að Locobase Repair er áhrifaríkt krem fyrir húðumhirðu. Notkunarsvæðin eru mörg svo sem frostbitnar kinnar, sprungnar varir og þurrir blettir á öllum líkamanum. Locobase Repair hefur húðvænt pH gildi og inniheldur samskonar fituefni og húðin framleiðir sjálf. Að sjálfsögðu er kremið án ilmefna.
Veitir langvarandi raka – virkar í allt að 24 klst.
Klínískt prófað
Áhrifaríkt og djúgt, enginn sviði.
Mælt með af norrænu Astma- og ofnæmissamtökunum
Svona virkar Locobase Repair
Þegar húðin er heilbrigð virkar allt eins og það á að gera. Fituframleiðandi frumur sjá um hornlag sem verndar undirhúðina gegn uppgufun vatns og heldur húðinni mjúkri, teygjanlegri og heilrigðri. En þegar húðin er þurr og illa farin virkar húðvörnin ekki eins og hún ætti að gera. Vatnið gufar upp of hratt, svolítið eins og svampur með götum. Þetta veldur þurri og sprunginni húð, roða, ertingu, bólgum og jafnvel exemi.
Locobase Repair verndar og endurbyggir laskaða húðvörn.
Þurr húð er merki um að húðvörnin sé löskuð og ætti að gera við hana eins fljótt og auðið er. Locobase Repair hefur tvöföld áhrif. Það verndar húðina á sama tíma og það veitir húðinni fitu sem húðvörn þín þarfnast fyrir skóta og varanlega viðgerð. Locobase Repair gefur húðlíka fitu sem smýgur djúpt inn í húðina og losnar þegar þörf krefur. Það veitir áhrifaríka og langvarandi vörn gegn þurrki, rétt eing og leðurhanski í köldu og röku veðri.
Locobase Repair virkar strak við notkun og í allt að 24 klst. Það er því yfirleitt nóg að bera á húðina einu sinni á dag til að halda henni mjúkri og heilbrigðri.
Notkunarsvæði
Locobase Repair hentar börnum og fullorðnum og er fyrst og fremst ætlað fyrir:
Notkun
Locobase Repair er mjög milt og er nóg að bera þunnt lag af kreminu á þurr húðsvæði. Notaðu magn sem jafngildir stærð naglarinnar á litla fingri. Berið á útsett húðsvæði að minnsta kosti einu sinni á dag eða oftar ef þörf krefur – kremið virkar í allt að 24 klukkustundir eftir að það er borið á. Berið kremið á á kvöldin, það gefur kreminu nægan tíma til að virka.
Vegna séstakrar samsetningar má upplifa Locobase Repair stífara en mörg önnur krem. Aftur á móti fer kremið hratt inn í húðina.
Innihaldsefni
Locobase Rapair er með hátt fituinnihald (63%) og inniheldur blöndu af sérstakri og húðlíkri varnarfitu: keramíðum, kólestróli og fitusýrum.
Innihaldsefni
Petrolatum
Vand
Paraffin
Paraffinum Liquidum
Glycerin
Sorbitan oleat
Copernicia cerifera wax
Cholesterol
Ceramide 3
Oleic acid
Palmitic acid
Tromethamine
Carbomer














